Nú eru æfingar komnar á fullt eftir jólafrí. Eins og velunnarar okkar vita lauk haustönn með tvennum vel heppnuðum aðventutónleikum og erum við einstaklega þakklátar öllum þeim tryggu tónleikagestum sem glöddu okkur með nærveru sinni.
Þorravaka 13. febrúar Tilhlökkunin er mikil fyrir verkefnum vorannar. Má þar helst nefna Þorravöku og menningardagskrá í Kirkjuhvoli, fimmtudagskvöldið 13. febrúar en dagskráin er helguð listamönnum í Garðabæ. Vortónleikar 31. mars Það vorar snemma í hjörtum kórkvenna því árlegir vortónleikar verða rúmum mánuði fyrr en vanalega; eða þriðjudaginn 31. mars. Landsmót Gígjunnar 7. - 9. maí Starfsárinu lýkur svo með þátttöku í Landsmóti Gígjunnar, landssambandi íslenskra kvennakóra, sem haldið verður 7. - 9. maí í Hörpu og Laugardalshöll. Það er því ljóst að spennandi vorönn er framundan og að ekki verður setið auðum höndum frekar en fyrri daginn. Við vonum að sem flestir geti notið ofangreindra viðburða með okkur, það sannarlega eflir okkar skemmtilega starf og hvetur okkur áfram til góðra verka. Hlökkum til söngs og samveru með hækkandi sól 😊 |
Fréttasafn
September 2020
|