Kvennakór Garðabæjar heldur sína árlegu aðventutónleika miðvikudaginn 13. desember, kl. 20 í Digraneskirkju í KópavogiEfnisskrá tónleikanna verður fjölbreytt að vanda með hátíðlegum og léttum jólalögum sem ættu að koma tónleikagestum í sannkallað hátíðarskap. Eftir tónleikana er tónleikagestum boðið að þiggja heitt súkkulaði og smákökur í hliðarsal kirkjunnar.
Kórstjóri er Ingibjörg Guðjónsdóttir og píanóleikari Sólveig Anna Jónsdóttir en sérstakir gestir eru Berglind Stefánsdóttir, þverflautuleikari og Jón Rafnsson, kontrabassaleikari. Aðventutónleikarnir eru einn af hápunktum starfsársins. Garðbæingar og aðrir velunnarar kórsins hafa fjölmennt í Digraneskirkju ár hvert og því gott að tryggja sér miða í tíma. Við hlökkum til þess að eiga með ykkur notalega jólasöngstund. |
Fréttasafn
June 2021
|