Við í Kvennakór Garðabæjar buðum til árlegrar menningardagskrár sem fram fór í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli fimmtudagskvöldið 25. október. Menningardagskrá kórsins er haldin í samstarfi við Menningar- og safnanefnd Garðabæjar og er hluti af samstarfssamningi kórsins við bæinn. Dagskrá kvöldsins var að venju fjölbreytt. Ræðumaður kvöldsins, Eyþór Eðvarðsson, sálfræðingur hjá Þekkingarmiðlun, fræddi gesti um tilurð og merkingar ýmissa orðatiltækja á skemmtilegan hátt.
María Magnúsdóttir djasssöngkona og bæjarlistamaður Garðabæjar flutti nokkur lög, m.a. eigin tónsmíðar, við píanóleik Agnars Márs Magnússonar. Nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar, þau Auður Indriðadóttir á víólu og Guðmundur Steinn Markússon á píanó heilluðu gesti með framúrskarandi spilamennsku sinni. Kvennakór Garðabæjar söng nokkur lög bæði í byrjun og í lok dagskrár undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur en píanóleikari var Sólveig Anna Jónsdóttir. Heiða Gunnarsdóttir, formaður kórsins sá um að kynna atriði kvöldsins. Garðbæingar og aðrir velunnarar kórsins fjölmenntu og nutu þess sem boðið var upp á auk ljúffengra veitinga að hætti kórkvenna. Við þökkum þeim fjölmörgu gestum sem mættu kærlega fyrir komuna. |
Fréttasafn
June 2021
|