Þorravaka, menningardagskrá í tali og tónum, verður haldin fimmtudaginn 13. febrúar í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ og hefst kl. 20. Menningardagskráin er orðin árlegur viðburður í menningarlífi Garðabæjar og er þetta nítjánda árið sem Kvennakór Garðabæjar og Menningar- og safnanefnd Garðabæjar standa fyrir dagskrá sem þessari. Sú hefð hefur skapast að bæjarlistamaður Garðabæjar kynnir sig og verk sín. Bæjarlistamaður í ár er rithöfundurinn Bjarni M. Bjarnason en hann á að baki ellefu skáldsögur auk níu annarra ritverka. Bjarni hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar á ferli sínum, m.a. Íslensku bókmenntaverðlaunin.
Ræðumaður kvöldsins er Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri FranklinCovey á Íslandi. Guðrún er þekkt fyrir skemmtileg og fræðandi erindi en auk stjórnunarstarfa og kennslu við HR hefur hún síðastliðin ár unnið sem leiðbeinandi og markþjálfi í íslensku atvinnulífi og leitt fjölda vinnustofa um árangur liðsheilda og vinnustaða. Það er alltaf gaman og gefandi að kynna efnilega nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir áheyrendum Þorravöku og fylgjast með þeim stíga sín fyrstu skref á tónlistarbrautinni. Kvennakór Garðabæjar lofar fjölbreyttu og léttu lagavali en mun einnig kynna komandi afmælisár sem hefst 4. september 2020 þegar kórinn fagnar tuttugu árum frá stofnun. Þorravakan hefst kl. 20 og er aðgangseyrir 1800 kr. innifalið er kaffi og kruðerí að hætti kórkvenna. Allir eru hjartanlega velkomnir. Nú eru æfingar komnar á fullt eftir jólafrí. Eins og velunnarar okkar vita lauk haustönn með tvennum vel heppnuðum aðventutónleikum og erum við einstaklega þakklátar öllum þeim tryggu tónleikagestum sem glöddu okkur með nærveru sinni.
Þorravaka 13. febrúar Tilhlökkunin er mikil fyrir verkefnum vorannar. Má þar helst nefna Þorravöku og menningardagskrá í Kirkjuhvoli, fimmtudagskvöldið 13. febrúar en dagskráin er helguð listamönnum í Garðabæ. Vortónleikar 31. mars Það vorar snemma í hjörtum kórkvenna því árlegir vortónleikar verða rúmum mánuði fyrr en vanalega; eða þriðjudaginn 31. mars. Landsmót Gígjunnar 7. - 9. maí Starfsárinu lýkur svo með þátttöku í Landsmóti Gígjunnar, landssambandi íslenskra kvennakóra, sem haldið verður 7. - 9. maí í Hörpu og Laugardalshöll. Það er því ljóst að spennandi vorönn er framundan og að ekki verður setið auðum höndum frekar en fyrri daginn. Við vonum að sem flestir geti notið ofangreindra viðburða með okkur, það sannarlega eflir okkar skemmtilega starf og hvetur okkur áfram til góðra verka. Hlökkum til söngs og samveru með hækkandi sól 😊 |
Fréttasafn
September 2020
|